Skip to content

Guðrúnarstofa

Guðrúnarstofa er staðsett á miðjum Sogn stúdentagörðunum (fyrsta blokk á hægri hönd matvörubúðarinnar REMA 1000, 5. hæð). Hægt er að komast þangað með því að taka strætisvagn 25 frá Majorstuen til Solvang. Einnig er hægt að taka T-bane til Ullevaal stadion og ganga, tekur ca. 7-9 mín. Gengið er framhjá Ullevaal leikvanginum (stór og mikill), yfir Store Ringvei (hraðbraut) á rauðri göngubrú, upp smá brekku (ca. 287 metrar eða 366 skref fyrir stúlkur sem taka stór skref í skóm nr. 38) og þá eru Sogn stúdentagarðarnir á hægri hönd. Þegar þið sjáið REMA 1000 þá er gott að byrja á því að fara þar inn og kaupa mikið nammi, snakk og gos!

Þessi mynd sýnir leiðina frá Ullevaal Stadion, sem er í mínútu göngufæri frá Ullevaal T-bane stasjon, upp að Guðrúnarstofu:

Leiðin að Guðrúnarstofu

 

Heimilisfang: Rolf E Stenersens Allé 28 – S5104, 0858 Oslo

Hægt er að finna nákvæman leiðavísi/ferðamáta á www.trafikanten.no

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.