Fermingarveisla !!!!
Jæja þá er kominn tími á okkar árlegu fermingarveislu.
Fyrir þá sem ekki vita hvað um ræðir þá er enginn að fara að fermast. Þetta er bara partý þar sem allir koma með eitthvað á veisluborðið. Kökur, heita rétti, smákökur, kex eða bara eitthvað sem hægt er borða og deila með öðrum. Vegna þess hversu vel þetta hefur heppnast og veisluborðið hefur verið yfirfullt af kræsingum þá líkist þetta einna helst góðri fermingarveislu.
Hver og einn mætir með drykkjarföng fyrir sig hvort sem það er áfengt eða óáfengt og svo verður bara stanslaust stuð.
Hvenær:
LAUGARDAGINN 16. október
KL: 18:00
Staðsetning:
Guðrúnarstofa
Rolf E Stenersens Allé 28, efstu hæð (Sogn Studentby)
Nánari lýsing hvernig á að komast þangað hérna til hægri á síðunni!
Það er skylda að taka með sér eitthvað á borðið!!!!
Endilega commenta hér fyrir neðan ef þið ætlið að koma og jafnvel hvað þið eruð að spá í að koma með
Ef upp koma spurningar þá er alltaf hægt að senda okkur póst: fisn.stjorn@gmail.com
eða hafa samband á fésbókinni. Endilega allir sem eru ekki hluti af hópnum okkar á fb að skrá sig.
Sjáumst eldhress og eiturkát
Saga Össurar, ritari
p.s. börn eru velkomin í fyrrihluta veislunnar



Hæ
Ég kem kannski…
snakk eða hjónabandssælu. hvort ég nenni að baka eða ekki.
mm… hljómar allt svo vel! Ég kem með eitthvað bakað, snúða eða bollur eða skúffuköku eða eitthvað!
Eg mæti, mæti med kex og osta eda kex og salat, eitthvad tviumlikt
Ég ætla að mæta en er búin að eiga í erfiðleikum að ákveða hvað ég eigi að koma með. Það verður samt örugglega einhverskonar kaka.
Ég mæti auðvitað
og er að spá í að koma með heitan brokkolí rétt.
Ef ég verð í stuði þá kem ég jafnvel með bananabrauð líka
Vonandi sjáum við sem flesta