Skip to content

Så e det på’an igjen – Haustið 2010

18.8.2010

Velkomin, kæru meðstúdentar og landar!

Sumarið er búið, það var heitt og stutt á Íslandi en frekar blautt og langt í Osló. Mörg ykkar eru að koma til Oslóar að hausti til í fyrsta sinn, önnur kannski í sjötta eða sjöunda!

Eins og þið vitið sem hafið lesið síðuna okkar, stendur til að loka Guðrúnarstofu. Nýjustu upplýsingar frá SiO herma að 1. desember hefjist byggingavinnan. Enn viðeigandi dagur! Þá verðum við að vera búin að flytja dótið okkar undir verndarvæng safnaðarins. Ég treysti á og vona að við getum gert það öll í sameiningu, í “dugnads-anda”. SiO hefur áður sagt að við fáum lánaða bíla frá þeim.

Valgerður gjaldkeri (sem er örugglega í rólegustu gjaldkerastöðu í heimi – engar tekjur og engin útgjöld!) ætlar því miður að yfirgefa okkur í haust og halda á vit ævintýranna í Brussell og verður hennar sárt saknað. Það þýðir auðvitað að þá vantar einhvern í hennar stað í stjórninni.

Til að kjósa nýjan stjórnarmeðlim og starta vetrinum verður því haldinn:

PARTÝFUNDUR!! Laugardaginn 11. september frá kl. 18:00 í Guðrúnarstofu.

DAGSKRÁ

1. mál: Kjósa nýjan gjaldkera!

2. mál: Kynning á Osló, Íslendingastarfi og fleira skemmtilegt!

3. mál: Skipuleggja flutninga Guðrúnarstofu!

4. mál: Kynnast nýju fólki og skemmta sér!

Ég kalla stefnu vetrarins  K - S - K = Krakkar, Saman, Kúl! 

Vonandi geta sem flestir séð sér fært að koma og við viljum að sjálfsögðu sjá ný andlit.

Það verður ekki grill á staðnum, en í Guðrúnarstofu er eldavél, ofn og örbylgjuofn og svo fást mjög svo óumhverfisvæn einnota grill í Rema þúsund, ef þið viljið éta og svona áður en formleg dagskrá hefst!

Að lokum vil ég minna á SMÁAUGLÝSINGARNAR hér á síðunni okkar. Þar er komin inn ein húsnæðisauglýsing, svona meðal annars.

Nýir félagar mega alveg kynna sig hér í athugasemdum, eða senda póst með fyrirspurnum/upplýsingum á fisn.stjorn@gmail.com

Við bítum ekki…

8 Ummæli leave one →
  1. Marta permalink
    21.9.2010 21:37

    Hvað er langt á milli funda hjá ykkur? Ég missti af þessum fundi og langar endilega að komast í samband við skólafólk hér í Osló :)

  2. Saga Davíðsd. permalink
    9.9.2010 21:52

    ohh afhverju þarf allt í Oslo að gerast 11. september! kemst því miður ekki :( en get örugglega hjálpað til við að flytja.

  3. Inga permalink
    7.9.2010 17:12

    Eg kem

  4. Inga permalink
    7.9.2010 17:11

    Eg kem lika.

  5. Linda permalink
    26.8.2010 23:09

    ég kem :)

  6. Saga Össurar permalink
    26.8.2010 22:15

    Ég mæti ;)
    Endilega allir að mæta OG kommenta hér!

  7. Thelma Dögg permalink
    19.8.2010 8:25

    Gott framtak frú formaður. Ég býð mig fram til gjaldkera og ætla líka að bjóða fram aðstoð mína við flutningana. Vona að sem flestir mæti :)

  8. Geir permalink
    19.8.2010 1:37

    Já. verður maður ekki að mæta.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.