Skip to content

Bakstur fyrir próflestur

6.4.2010

Takk fyrir síðast kæru físnarar!

Mikið var gaman að sjá ykkur svona mörg. Í spjalli okkar félaganna á barnum braust út skyndileg nostalgía og þrá eftir íslensku bakkelsi, eins og ostaslaufum, tebollum og snúðum. Félagi Þóra ákvað því að deila með okkur nokkrum vel völdum uppskriftum úr uppskriftabankanum sínum sem hún geymir í bankahólfi í hvelfingu undir Stórþinginu niðri í bæ… eða þannig.

Hér koma herlegheitin og heimilda er ekki getið að sinni.. (Jói Fel verður þá bara að lögsækja okkur… eða opna útibú í Osló!)

OSTASLAUFUR

(Þóra gerði hálfa uppskrift og það var passlegt)
330ml mjólk
600g hveiti
20g salt
20g sykur
60g smjörlíki
10g pressuger

Smurostur sem fylling
60g sesamfræ og 60g birkifræ ofan á.

Allt í deigið sett i hrærivél og unnið rólega í 4 mín með krók og svo í 4 mín á miðjuhraða. Mótið deigið í kúlu og látið hefast undir rökum klúti í 45 mín. Fletjið út með kefli í 60×25 cm. Smyrjuið ostinum á miðjuna (svo að hægt sé að leggja hliðarnar alveg yfir ostinnn), setjið vatn á endana og bjótið saman. Snúið deiginu með sárið niður. penslið deigið með vatni og sáldrið fræblöndunni yfir. Skerið í strimla og snúið til að mynda slaufur. Leggið á bökunarpappír og látið hefast i 45 mín, látið svo bakast i 17 mín við 220°C.

SNÚÐAR

4dl vatn
700g hveiti
80g sykur
80g smjörlíki
1tsk salt
20g pressuger

Fylling
5msk sykur
1msk kanill

Glassúr
300g flórsykur
vatn
1msk sítrónusafi
(Á Ísafirði þykja snúðarnir bestir með bræddu hörðnuðu rjómasúkkulaði ofan á)

Setjið allt í deigið í hrærivél og vinnið rólega með króknum i 2 mín, vinnið svo á miðlungshraða í 6 mín. Mótið deigið í kúlu og látið hefast í 30 mín undir rökum klút. Fletjið út i 60×60 og stráið kanilsykri yfir deigið, penslið brúnir með vatni til að það festist saman. Rúllið deiginu upp og skerið niður í ca 2 cm stærðir. Raðið snúðunum á bökunarpappír og látið hefast undir rökum klút í 60 mín eða þar til þeir hafa tvöfalldast. Bakið í 17 mín við 220°C, en það fer eftir stærð snúðanna.
Glassúr
Setjið allt í skál og vinnið með trésleif, þykktin á að vera þannig að glassúrinn leki af sleifinni hægt og rólega. Smyrjið glassúrnum yfir kalda snúðana. Fyrir brúnan glassúr, takið út 2 msk með flórsykri og blandið í staðinn 2 msk kakó.

SÚKKULAÐI TEKEXKÖKUR

(Þóra taldi líklegt að þetta væru hinar einu sönnu tebollur sem Geir saknar svo sárt)
300g hveiti
2 1/2tsk lyftiduft
1/3tsk matarsódi (natron í búðum hér, í smá bréfpökkum)
1/2tsk salt
70g sykur
45g hrásykur
90g smjör
2tsk egg
2tsk vanilludropar
1,3dl rjómi
200g súkkulaði 52%
Setjið í skál hveiti, lyftiduft, matarsóda, salt og sykur. Setið vélina rólega af stað og bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum og vinnið þar til það hefur blandast lítilvega saman við. Sláið saman eggin, vanilluna og rjómann, setjið vökvann saman við í vélina og vinnið rólega í gott deig. Bætið síðan súkkulaðinu við og vinnið rólega saman. Takið deigið í tvennt og rúllið í tvo 20 cm hringi, kælið deigið. Skerið hringina í sex hluta og bakið við 200°C í 20 mín.

Verði ykkur að góðu og gangi ykkur vel í próflestrinum!

Kveðja,

formaðurinn

4 Ummæli leave one →
  1. Bergþóra permalink
    10.4.2010 14:33

    Já frábært! Jú snúðarnir á Ísó eru BESTIR Í HEIMINUM! Fékk þá þegar ég var 10+/- ára og man enþá hvernig þeir smakkast eftir 10 sek í örbylgjuofninum, vá….myndi borga mikið fyrir einn slíkan núna með ískaldri mjólk!

  2. 8.4.2010 23:18

    Þið kunnið bara ekki gott að éta! (eins og maðurinn sagði)
    Hér má t.d. sjá útgáfu af Gamlabakaríssnúðunum á Ísafirði sem kallast “Litlir snúðar” og hlutfallslega stærð snúðsins miðað við brúnt hænuegg:

    http://farm3.static.flickr.com/2627/3682359112_6b5bd6859f.jpg

    Namminamm! Ætla að biðja Smára að kaupa snúða og langlokur í bakaríinu á laugardaginn og koma með til mín! :D

    Kveðja the formaður from Ísafjörður.

  3. 6.4.2010 20:31

    Játs SNILLINGUR!! Hlakka til að búa til og borða snúða nammmmmm

  4. Thelma Dögg permalink
    6.4.2010 15:52

    snilld Sigga, mmm ég ætla klárlega að baka ostaslaufurnar. Verst að ég á ekki hrærivél en það hlýtur að reddast :)

    ps greinilega ekki góðir snúðar á Ísafirði ;) hehe

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.