Utepils
Það líður að sumri og eins og FÍSNarfólk gat lesið um í síðustu færslu stendur til að loka Guðrúnarstofu. Af því tilefni viljum við í stjórninni fara hægt og rólega að venja ykkur við að hittast annars staðar en uppi á Sogni og boðum til samfagnaðar í sólinni!
Staður: Oslo Mekaniske Verksted á Grönland. Betur þekktur sem Oslo Mek.
Stund: Föstudagurinn 26. mars kl. 17:00
Þetta verður semsagt ekta norskur utepils eins og tíðkast að fá sér eftir vinnu. Á Oslo Mek er ekki matsala en það er hægt að panta eða kaupa sér mat frá öðrum veitingastöðum (svokallað “take-away”…) og borða á staðnum – að því gefnu að maður kaupi drykki á Oslo Mek..
Takið með ykkur sólgleraugun, góða skapið, börnin og páskaveðrið!
Stjórnin

Loksins, eitthvad sem eg kemst a!!!
Jamm, ég er að vinna til hálf 6 en kem um leið og ég er búin
Við mætum, öll fjögur
)
Ég mæti og tek með mér 2 íslenska norðmenn.