Skip to content

Niðurstöður aðalfundar

15.3.2010

Aðalfundur FÍSN var haldinn 9. mars sl. Það helsta sem fram kom á fundinum var eftirfarandi:

  • FÍSN er nú skuldlaust með öllu. Gerðar hafa verið upp margra ára gamlar skuldir við SiO og gamla formanninum var því mjög létt að skila af sér góðu búi! FÍSN þarf ekki að greiða leigu af Guðrúnarstofu fyrir árið 2010 – sjá næsta lið…
  • SiO hefur sagt upp leigusamningi okkar á Guðrúnarstofu. Sjá nánar í fréttatilkynningu sem FÍSN sendi til fjölmiðla, og frétt mbl.is um málið. Þar kemur það mikilvægasta fram. Neðarlega í fréttinni stendur að íslenski söfnuðurinn hafi ákveðið að hjálpa og mun það verða í formi einhvers konar skrifstofu/aðstöðu fyrir félagið í þeirri kirkju (eða safnaðarheimili við kirkjuna) sem til stendur að söfnuðurinn kaupi á næstu misserum.
  • Ný stjórn var kjörin og í henni sitja: Saga Össurardóttir (NVH), Sigríður Gísladóttir (NVH) og Valgerður Húnbogadóttir (UiO). Þær hafa skipt með sér verkum um það bil á þann veg að Sigga er formaður, Saga gjaldkeri og Valgerður ritari/varaformaður.
  • Eftirfarandi lagabreytingartillögur voru samþykktar – Í 4. grein laga FÍSN stendur: “Stjórnina skipa 5 félagar.” Það breytist í “Stjórnina skipa 3 félagar.”  Í 5. grein stendur: “Boða skal til hans með minnst 5 daga fyrirvara.” Breytist í “Boða skal til hans með minnst 7 daga fyrirvara.”
  • Allir fundargestir voru sammála um að félagið þyrfti að hittast sem fyrst og gera eitthvað skemmtilegt! Nánari upplýsingar koma um það síðar, en það er strax byrjað að skipuleggja! Við viljum einnig benda fólki á að hafa samband ef það hefur einhverjar tillögur um skemmtilega hluti sem við getum gert. Verið ófeimin! Bara senda línu á fisn.stjorn@gmail.com
2 Ummæli leave one →
  1. Bergþóra Hallbjörnsdóttir permalink
    15.3.2010 23:33

    Ég er líka ánægð með nýju stjórnina og vil gjarnan þakka gömlum stjórnarmeðlimum fyrir gott samstarf gegnum árin. Efast ekki um að nýja stjórnin nái að breyta þessum grátlega fluttning í eitthvað jákvætt og uppbyggjandi. Hlakka til að fylgjast með í framtíðinni.

  2. Thelma Dögg permalink
    15.3.2010 22:45

    Þetta er allt saman mjög sorglegt með Guðrúnarstofu en við reynum að gera það besta úr þessu. Plönum eitthvað sniðugt bráðlega. Líst vel á nýju stjórnina.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.