Aðalfundur FÍSN 2010
4.3.2010
Kæru námsmenn.
Núna næsta þriðjudag þann 9. mars klukkan 19:30 er Aðalfundur FÍSN. Stjórn FÍSN hefur núna síðustu vikur og mánuði unnið að mjög mikilvægum breytingum sem munu eiga sér stað á þessu ári. Þetta verður allt rætt á fundinum.
Dagskrá fundarins er:
Skýrsla stjórnar
Fjármál
Flutningur Guðrúnarstofu
Kosning stjórnar
Önnur mál
Fundurinn hefst klukkan 19:30 stundvíslega. Allir velkomnir og það geta allir boðið sig fram, þeir sem ætla að bjóða sig fram endilega senda mail á fisn.stjorn@gmail.com . Framboð í boði: Formaður, Vara formaður og Gjaldkeri. Frambjóðendur þurfa að vera námsmenn og kosnir stjórnarmeðlimir sitja einn ár í senn.
Kær kveðja,
Stjórn FÍSN
8 Ummæli
leave one →

Ég sé til hvort ég komist. Þarf að baka fyrir afmælisbarnið til að taka með á leikskólann á morgunn og hafði hugsað kvöldið í það. Reyni að sjálfsögðu að komast!
Oki, þá segi ég bara, ég kemst því miður ekki =) Have fun =P
Við mætum 7, fundurinn byrjar hálf átta!
Hlakka til að sjá ykkur.
Okey en þá mæli ég með því að við byrjum á slaginu og helst fyrr!
Þetta er því miður eini dagurinn þessa vikuna sem passar fyrir stjórnarmeðlimi og vikan eftir það gengur ekki upp. Við skulum reyna hafa fundinn ekki of langan.
Ég er mjög sammála Sögu, rosalega óheppilegur tími og sérstaklega með svona stuttum fyrirvara!!! Væri fínt ef hægt er að hafa þetta annan dag??
Ég er búin að svara þér á mailinu sem þú sendir ;0) Kv. Bergþóra
Þetta er rosalega óheppilegur tími, ég verð að vinna á CowboyBodega á þriðjudaginn og er svo að fara til Edinborgar a fim., en vil gjarnan mæta á svona fund. Getum við haft þetta á mánud. eða miðvikud í staðin?