Þorrablót 2010 hjá Íslendingafélaginu núna á laugardaginn.
Kæru félagar.
Viljum endilega benda á að núna næstkomandi laugardag 6.febrúar er Íslendingafélagið í Osló með Þorrablót með öllu tilheyrandi, þar spila svo Skítamórall fyrir dansi.
Íslendingafélagið styður við bakið á okkur og gefur stúdentum afslátt eins og vanalega, þetta árið hljóðar hann slíkt:
Stúdentar fá miðann í matinn á félagsgjaldi og á ballið 120 kr norskar í stað 200 kr.
Það er að verða uppselt í matinn svo fyrstir koma fyrstir fá. Hérna koma upplýsingar teknar beint frá heimasíðu Íslendingafélagsins:
Nú er miðasala á þorrablótið í fullum gangi og aðeins 30 miðar eftir í matinn og 60 miðar á ballið.
Aðeins 30 miðar eftir í matinn á Þorrablótið 6. feb. n.k.
Fyrstir koma fyrstir fá
Verðið í mat og ball er 450 kr. fyrir félagsmenn, 600 kr. fyrir utanfélagsfólk og miðar á ball kosta 200 kr og gilda frá kl. 22:30. (120 kr fyrir stúdenta).
Til að tryggja ykkur miða skal
1.Leggja inn á reikning Íslendingafélagsins 6019.05.31417 setjið nafn ykkar í skýringu.
2. Senda tölvupóst á thorri2010@gmail.com með nafni þess sem greiddi, fjölda miða og hvort um sé ad ræða matarmiða eða ballmiða. Innan 5 daga (vegna hægvirks bankakerfis) verður svo send staðfesting til baka í tölvupósti með númeri miðanna ykkar.
Ath. Mikilvægt er ad sama nafn komi fram í tölvupóstinum og þess sem greiddi.
Númerið/-in sem þið fáið send eru til að einfalda störf við dyrnar við komu. Gott ráð er að prenta tölvupóstinn með staðfestingunni og sýna hann við dyrnar.
Gleði gleði !
Ef uppselt verður, endurgreiðum við að sjálfsögðu þeim sem hafa lagt inn eftir að það gerist !! ![]()
Ef einhver er enn í vafa um hvernig skal kaupa miða, þá getur sá hinn sami haft samband við Valgerði í síma: 404 65 428. Hins vegar mun ekki vera tekið við pöntunum símleiðis.
Hérna eru allar upplýsingarnar sem við þurfum, þá er bara að mæta og hafa gaman!
Eins og fram kom, þá er ekki mikið af miðum eftir.
Kær kveðja,
Stjórnin.

eitthvað að gerast í þessu félagi?
haha! Hann heitir ekki Þorri sko..
Heyrðu Saga sendu bara tölvupóst á Þorra, mailið er gefið upp hérna að ofan, og segðu honum að þú sért stúdent og spurðu hvernig hann vill gera þetta.
Það eru fullt af fólki að fara, endilega sem flestir að bætast í hópinn. Hlakka til að tjútta með ykkur!
En ég er búin að borga miðann? á ég þá að senda mail á þennan þorra?