Fermingarveisla !!!!
Jæja þá er kominn tími á okkar árlegu fermingarveislu.
Fyrir þá sem ekki vita hvað um ræðir þá er enginn að fara að fermast. Þetta er bara partý þar sem allir koma með eitthvað á veisluborðið. Kökur, heita rétti, smákökur, kex eða bara eitthvað sem hægt er borða og deila með öðrum. Vegna þess hversu vel þetta hefur heppnast og veisluborðið hefur verið yfirfullt af kræsingum þá líkist þetta einna helst góðri fermingarveislu.
Hver og einn mætir með drykkjarföng fyrir sig hvort sem það er áfengt eða óáfengt og svo verður bara stanslaust stuð.
Hvenær:
LAUGARDAGINN 16. október
KL: 18:00
Staðsetning:
Guðrúnarstofa
Rolf E Stenersens Allé 28, efstu hæð (Sogn Studentby)
Nánari lýsing hvernig á að komast þangað hérna til hægri á síðunni!
Það er skylda að taka með sér eitthvað á borðið!!!!
Endilega commenta hér fyrir neðan ef þið ætlið að koma og jafnvel hvað þið eruð að spá í að koma með
Ef upp koma spurningar þá er alltaf hægt að senda okkur póst: fisn.stjorn@gmail.com
eða hafa samband á fésbókinni. Endilega allir sem eru ekki hluti af hópnum okkar á fb að skrá sig.
Sjáumst eldhress og eiturkát
Saga Össurar, ritari
p.s. börn eru velkomin í fyrrihluta veislunnar

Så e det på’an igjen – Haustið 2010
Velkomin, kæru meðstúdentar og landar!
Sumarið er búið, það var heitt og stutt á Íslandi en frekar blautt og langt í Osló. Mörg ykkar eru að koma til Oslóar að hausti til í fyrsta sinn, önnur kannski í sjötta eða sjöunda!
Eins og þið vitið sem hafið lesið síðuna okkar, stendur til að loka Guðrúnarstofu. Nýjustu upplýsingar frá SiO herma að 1. desember hefjist byggingavinnan. Enn viðeigandi dagur! Þá verðum við að vera búin að flytja dótið okkar undir verndarvæng safnaðarins. Ég treysti á og vona að við getum gert það öll í sameiningu, í “dugnads-anda”. SiO hefur áður sagt að við fáum lánaða bíla frá þeim.
Valgerður gjaldkeri (sem er örugglega í rólegustu gjaldkerastöðu í heimi – engar tekjur og engin útgjöld!) ætlar því miður að yfirgefa okkur í haust og halda á vit ævintýranna í Brussell og verður hennar sárt saknað. Það þýðir auðvitað að þá vantar einhvern í hennar stað í stjórninni.
Til að kjósa nýjan stjórnarmeðlim og starta vetrinum verður því haldinn:
PARTÝFUNDUR!! Laugardaginn 11. september frá kl. 18:00 í Guðrúnarstofu.
DAGSKRÁ
1. mál: Kjósa nýjan gjaldkera!
2. mál: Kynning á Osló, Íslendingastarfi og fleira skemmtilegt!
3. mál: Skipuleggja flutninga Guðrúnarstofu!
4. mál: Kynnast nýju fólki og skemmta sér!
Ég kalla stefnu vetrarins K - S - K = Krakkar, Saman, Kúl!
Vonandi geta sem flestir séð sér fært að koma og við viljum að sjálfsögðu sjá ný andlit.
Það verður ekki grill á staðnum, en í Guðrúnarstofu er eldavél, ofn og örbylgjuofn og svo fást mjög svo óumhverfisvæn einnota grill í Rema þúsund, ef þið viljið éta og svona áður en formleg dagskrá hefst!
Að lokum vil ég minna á SMÁAUGLÝSINGARNAR hér á síðunni okkar. Þar er komin inn ein húsnæðisauglýsing, svona meðal annars.
Nýir félagar mega alveg kynna sig hér í athugasemdum, eða senda póst með fyrirspurnum/upplýsingum á fisn.stjorn@gmail.com
Við bítum ekki…
Sumargrillbjórspil?
Á morgun er sumardagurinn fyrsti (eins og sjá má á veðrinu, íslenskt já takk!) og hafa ýmsir komið að máli við mig undanfarna daga vegna mikillar löngunar eftir að samgleðjast sumrinu.
Nú er sumar, gleðjist gumar…
Hvað segiði? Er stemmari fyrir hammara og pullu og öllara á Gunnu? T.d. nú á flöööskudaginn?
Verið svo góð að skilja eftir athugasemd!
Bakstur fyrir próflestur
Takk fyrir síðast kæru físnarar!
Mikið var gaman að sjá ykkur svona mörg. Í spjalli okkar félaganna á barnum braust út skyndileg nostalgía og þrá eftir íslensku bakkelsi, eins og ostaslaufum, tebollum og snúðum. Félagi Þóra ákvað því að deila með okkur nokkrum vel völdum uppskriftum úr uppskriftabankanum sínum sem hún geymir í bankahólfi í hvelfingu undir Stórþinginu niðri í bæ… eða þannig.
Hér koma herlegheitin og heimilda er ekki getið að sinni.. (Jói Fel verður þá bara að lögsækja okkur… eða opna útibú í Osló!)
OSTASLAUFUR
(Þóra gerði hálfa uppskrift og það var passlegt)
330ml mjólk
600g hveiti
20g salt
20g sykur
60g smjörlíki
10g pressuger
Smurostur sem fylling
60g sesamfræ og 60g birkifræ ofan á.
Allt í deigið sett i hrærivél og unnið rólega í 4 mín með krók og svo í 4 mín á miðjuhraða. Mótið deigið í kúlu og látið hefast undir rökum klúti í 45 mín. Fletjið út með kefli í 60×25 cm. Smyrjuið ostinum á miðjuna (svo að hægt sé að leggja hliðarnar alveg yfir ostinnn), setjið vatn á endana og bjótið saman. Snúið deiginu með sárið niður. penslið deigið með vatni og sáldrið fræblöndunni yfir. Skerið í strimla og snúið til að mynda slaufur. Leggið á bökunarpappír og látið hefast i 45 mín, látið svo bakast i 17 mín við 220°C.
SNÚÐAR
4dl vatn
700g hveiti
80g sykur
80g smjörlíki
1tsk salt
20g pressuger
Fylling
5msk sykur
1msk kanill
Glassúr
300g flórsykur
vatn
1msk sítrónusafi
(Á Ísafirði þykja snúðarnir bestir með bræddu hörðnuðu rjómasúkkulaði ofan á)
Setjið allt í deigið í hrærivél og vinnið rólega með króknum i 2 mín, vinnið svo á miðlungshraða í 6 mín. Mótið deigið í kúlu og látið hefast í 30 mín undir rökum klút. Fletjið út i 60×60 og stráið kanilsykri yfir deigið, penslið brúnir með vatni til að það festist saman. Rúllið deiginu upp og skerið niður í ca 2 cm stærðir. Raðið snúðunum á bökunarpappír og látið hefast undir rökum klút í 60 mín eða þar til þeir hafa tvöfalldast. Bakið í 17 mín við 220°C, en það fer eftir stærð snúðanna.
Glassúr
Setjið allt í skál og vinnið með trésleif, þykktin á að vera þannig að glassúrinn leki af sleifinni hægt og rólega. Smyrjið glassúrnum yfir kalda snúðana. Fyrir brúnan glassúr, takið út 2 msk með flórsykri og blandið í staðinn 2 msk kakó.
SÚKKULAÐI TEKEXKÖKUR
(Þóra taldi líklegt að þetta væru hinar einu sönnu tebollur sem Geir saknar svo sárt)
300g hveiti
2 1/2tsk lyftiduft
1/3tsk matarsódi (natron í búðum hér, í smá bréfpökkum)
1/2tsk salt
70g sykur
45g hrásykur
90g smjör
2tsk egg
2tsk vanilludropar
1,3dl rjómi
200g súkkulaði 52%
Setjið í skál hveiti, lyftiduft, matarsóda, salt og sykur. Setið vélina rólega af stað og bætið smjörinu saman við í nokkrum skömmtum og vinnið þar til það hefur blandast lítilvega saman við. Sláið saman eggin, vanilluna og rjómann, setjið vökvann saman við í vélina og vinnið rólega í gott deig. Bætið síðan súkkulaðinu við og vinnið rólega saman. Takið deigið í tvennt og rúllið í tvo 20 cm hringi, kælið deigið. Skerið hringina í sex hluta og bakið við 200°C í 20 mín.
Verði ykkur að góðu og gangi ykkur vel í próflestrinum!
Kveðja,
formaðurinn
Utepils
Það líður að sumri og eins og FÍSNarfólk gat lesið um í síðustu færslu stendur til að loka Guðrúnarstofu. Af því tilefni viljum við í stjórninni fara hægt og rólega að venja ykkur við að hittast annars staðar en uppi á Sogni og boðum til samfagnaðar í sólinni!
Staður: Oslo Mekaniske Verksted á Grönland. Betur þekktur sem Oslo Mek.
Stund: Föstudagurinn 26. mars kl. 17:00
Þetta verður semsagt ekta norskur utepils eins og tíðkast að fá sér eftir vinnu. Á Oslo Mek er ekki matsala en það er hægt að panta eða kaupa sér mat frá öðrum veitingastöðum (svokallað “take-away”…) og borða á staðnum – að því gefnu að maður kaupi drykki á Oslo Mek..
Takið með ykkur sólgleraugun, góða skapið, börnin og páskaveðrið!
Stjórnin
Niðurstöður aðalfundar
Aðalfundur FÍSN var haldinn 9. mars sl. Það helsta sem fram kom á fundinum var eftirfarandi:
- FÍSN er nú skuldlaust með öllu. Gerðar hafa verið upp margra ára gamlar skuldir við SiO og gamla formanninum var því mjög létt að skila af sér góðu búi! FÍSN þarf ekki að greiða leigu af Guðrúnarstofu fyrir árið 2010 – sjá næsta lið…
- SiO hefur sagt upp leigusamningi okkar á Guðrúnarstofu. Sjá nánar í fréttatilkynningu sem FÍSN sendi til fjölmiðla, og frétt mbl.is um málið. Þar kemur það mikilvægasta fram. Neðarlega í fréttinni stendur að íslenski söfnuðurinn hafi ákveðið að hjálpa og mun það verða í formi einhvers konar skrifstofu/aðstöðu fyrir félagið í þeirri kirkju (eða safnaðarheimili við kirkjuna) sem til stendur að söfnuðurinn kaupi á næstu misserum.
- Ný stjórn var kjörin og í henni sitja: Saga Össurardóttir (NVH), Sigríður Gísladóttir (NVH) og Valgerður Húnbogadóttir (UiO). Þær hafa skipt með sér verkum um það bil á þann veg að Sigga er formaður, Saga gjaldkeri og Valgerður ritari/varaformaður.
- Eftirfarandi lagabreytingartillögur voru samþykktar – Í 4. grein laga FÍSN stendur: “Stjórnina skipa 5 félagar.” Það breytist í “Stjórnina skipa 3 félagar.” Í 5. grein stendur: “Boða skal til hans með minnst 5 daga fyrirvara.” Breytist í “Boða skal til hans með minnst 7 daga fyrirvara.”
- Allir fundargestir voru sammála um að félagið þyrfti að hittast sem fyrst og gera eitthvað skemmtilegt! Nánari upplýsingar koma um það síðar, en það er strax byrjað að skipuleggja! Við viljum einnig benda fólki á að hafa samband ef það hefur einhverjar tillögur um skemmtilega hluti sem við getum gert. Verið ófeimin! Bara senda línu á fisn.stjorn@gmail.com
Aðalfundur FÍSN 2010
Kæru námsmenn.
Núna næsta þriðjudag þann 9. mars klukkan 19:30 er Aðalfundur FÍSN. Stjórn FÍSN hefur núna síðustu vikur og mánuði unnið að mjög mikilvægum breytingum sem munu eiga sér stað á þessu ári. Þetta verður allt rætt á fundinum.
Dagskrá fundarins er:
Skýrsla stjórnar
Fjármál
Flutningur Guðrúnarstofu
Kosning stjórnar
Önnur mál
Fundurinn hefst klukkan 19:30 stundvíslega. Allir velkomnir og það geta allir boðið sig fram, þeir sem ætla að bjóða sig fram endilega senda mail á fisn.stjorn@gmail.com . Framboð í boði: Formaður, Vara formaður og Gjaldkeri. Frambjóðendur þurfa að vera námsmenn og kosnir stjórnarmeðlimir sitja einn ár í senn.
Kær kveðja,
Stjórn FÍSN
Kæru félagar.
Viljum endilega benda á að núna næstkomandi laugardag 6.febrúar er Íslendingafélagið í Osló með Þorrablót með öllu tilheyrandi, þar spila svo Skítamórall fyrir dansi.
Íslendingafélagið styður við bakið á okkur og gefur stúdentum afslátt eins og vanalega, þetta árið hljóðar hann slíkt:
Stúdentar fá miðann í matinn á félagsgjaldi og á ballið 120 kr norskar í stað 200 kr.
Það er að verða uppselt í matinn svo fyrstir koma fyrstir fá. Hérna koma upplýsingar teknar beint frá heimasíðu Íslendingafélagsins:
Nú er miðasala á þorrablótið í fullum gangi og aðeins 30 miðar eftir í matinn og 60 miðar á ballið.
Aðeins 30 miðar eftir í matinn á Þorrablótið 6. feb. n.k.
Fyrstir koma fyrstir fá
Verðið í mat og ball er 450 kr. fyrir félagsmenn, 600 kr. fyrir utanfélagsfólk og miðar á ball kosta 200 kr og gilda frá kl. 22:30. (120 kr fyrir stúdenta).
Til að tryggja ykkur miða skal
1.Leggja inn á reikning Íslendingafélagsins 6019.05.31417 setjið nafn ykkar í skýringu.
2. Senda tölvupóst á thorri2010@gmail.com með nafni þess sem greiddi, fjölda miða og hvort um sé ad ræða matarmiða eða ballmiða. Innan 5 daga (vegna hægvirks bankakerfis) verður svo send staðfesting til baka í tölvupósti með númeri miðanna ykkar.
Ath. Mikilvægt er ad sama nafn komi fram í tölvupóstinum og þess sem greiddi.
Númerið/-in sem þið fáið send eru til að einfalda störf við dyrnar við komu. Gott ráð er að prenta tölvupóstinn með staðfestingunni og sýna hann við dyrnar.
Gleði gleði !
Ef uppselt verður, endurgreiðum við að sjálfsögðu þeim sem hafa lagt inn eftir að það gerist !! ![]()
Ef einhver er enn í vafa um hvernig skal kaupa miða, þá getur sá hinn sami haft samband við Valgerði í síma: 404 65 428. Hins vegar mun ekki vera tekið við pöntunum símleiðis.
Hérna eru allar upplýsingarnar sem við þurfum, þá er bara að mæta og hafa gaman!
Eins og fram kom, þá er ekki mikið af miðum eftir.
Kær kveðja,
Stjórnin.
Litlu jólin – 1. des gleði!
Kæru félagar nær og fjær.
Núna næsta föstudag 4.des verða Litlu jólin uppí Guðrúnarstofu. Þá komum við saman og skellum okkur í jólaskapið. Endilega komið með smákökur hvort sem þær eru heimabakaðar eða innkeyptar ;0) Þeir sem vilja fá sér eitthvað fljótandi komið endilega með það með ykkur ;0)
Þeir sem luma á íslenskum jólalögum á Ipotinum eru sérstaklega velkomnir! Gleðin byrjar 20:00 og mun engillinn hún Saga opna húsið.
Komum saman, skellum Jólahjól á fóninn og höldum partí, allir velkomnir ungir sem aldnir.
Félagsvist/Spilakvöld?
Halló allir!

Hjarta, spaði, tígull, lauf...
Samkvæmt mjög strangri dagskrá FÍSN sem var búin til fyrr í haust stendur til að hafa félagsvist á föstudaginn kemur ef næg þátttaka fæst. Þar sem nokkuð glatað er að spila félagsvist ef aðeins fjórir mæta ætlum við að halda spilakvöld ef færri en 16 bjóða sig fram í vistina.
ÞVÍ BIÐJUM VIÐ ALLA SEM HYGGJAST MÆTA UM AÐ SKRÁ SIG Í ATHUGASEMDAKERFINU.
Áætlað er að dyrnar opni kl. 19 og að byrjað verði að spila fljótlega eftir það. Fyrir þá sem ekki kunna félagsvist má nefna að þetta er alveg eins og vist (tromp, grand, nóló og svo framvegis), en spilað á mörgum borðum og sigurvegarar borðanna spila svo hver á móti öðrum.
Hér eru reglurnar fyrir félagsvist.
Ef þið eigið einhver skemmtileg spil má endilega hafa þau með!
Sem fyrr eru drykkir og annað slíkt í höndum hvers og eins og börnin eru velkomin, ef þau lofa að vera stillt!
Já og eins og í öllum almennilegum félagsvistum verða verðlaun!


